Founder's Lunch á SuperNova ári síðar

· Þórður

Startup SuperNova er viðskiptahraðall sem keyrir átta vikna dagskrá fyrir sprotafyrirtæki. Við tókum þátt í fyrra og núna í ágúst byrjaði næsti hópur í hraðlinum. Þórður, framkvæmdastjóri og einn stofnenda Atlas mætti í Founder's Lunch til að tala um okkar reynslu úr hraðlinum og líta um farinn veg.

Atlas kynnir á Founder's Lunch hjá Startup SuperNova. Á skjánum stendur „Takk fyrir.“ og áheyrendur sitja við borð í salnum.

Það er gaman að líta til baka og sjá árangurinn sem Atlas hefur náð á einu ári. Hér er það sem við lögðum til hópsins sem er að byrja.

Er hraðall góð nýting á tíma? Við vorum hikandi við að taka þátt til að byrja með og ekki viss um hvort það borgaði sig að verja átta vikum í vinnu sem tengist ekki beinni þróun og sókn. Við ákváðum að velja og hafna fyrirlestrum, mæta á það sem ætti best við okkur og sleppa hinu. Sú áætlun lifði ekki af fyrstu vikuna og allar efasemdir hurfu. Tímanum reyndist best varið í hraðlinum að fullu og við vildum ekki sleppa neinu.

Vandamálið, ekki lausnin. Stærsti lærdómurinn var að einblína ekki á lausnina og hvort hún gangi upp, heldur á vandamálið sjálft. Að geta nefnt tiltekið fólk sem glímir við það vandamál, tala við það og beina allri leit og öllum samtölum að raunverulegum vandamálum mögulegra samstarfsaðila. Þetta tók nokkrar vikur að síast inn, en þegar það gerðist breyttum við gersamlega hvernig samtöl við áttum.

Samfélagið tekur vel á móti manni. Sprotasamfélagið á Íslandi er lítið og þar ríkir stuðningur og velvild. Á öllum þeim viðburðum sem fylgja kynnist maður fólkinu í samfélaginu vel og verður fullgildur meðlimur þess.

Tengslin skiluðu sér. Fólkið sem við kynntumst fyrir tilstilli hraðalsins opnaði á þau samstörf sem hafa reynst okkur afar vel. Við værum ekki þar sem við erum í dag ef við hefðum ekki tekið þátt.

Gangi ykkur vel sem eruð að byrja núna.