Handbók: hvað á að gera ef Ísland aftengist?
· Þórður
Getum við svarað því hvað myndi brotna ef sæstrengir færu í sundur? Atlas gerði greiningu á því með því að mæla alla umferð til að skoða hvort hún væri innan landsteina eða færi erlendis (þó ekki umferð frá viðskiptavinum). Úr varð meðfylgjandi skýrsla sem getur nýst sem handbók til að auka áfallaþol kerfa og vegvísir í vegferðinni að stafrænu fullveldi.
Verkefnið var styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Handbókin er gefin út undir CC BY 4.0. Deilið að vild.
Sækja handbókina (PDF, 300 KB)
