Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar
· Atlas
Daginn sem Atlas skýið fór í loftið fjölluðu Stöð 2 og Vísir um málið í frétt Lillýjar Valgerðar Pétursdóttur undir fyrirsögninni „Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar“.
Kerfið gerir vinnslu og geymslu gagna á Íslandi mögulega án þess að reiða sig á erlenda tæknirisa og sæstrengi. Atlas geymir gögn innan íslenskrar lögsögu, þar sem ekkert annað stjórnvald og engir aðrir hnýsnir aðilar hafa aðgang að þeim.
Þetta hefur verið reynt áður, fyrir fimmtán árum, en landslagið er orðið annað. Skýjavæðingin er lengra komin og óstöðugleikinn í alþjóðastjórnmálum er orðinn slíkur að fólk hugsar sig tvisvar um áður en það sendir gögn úr landi. Þar fyrir utan styrkir þetta innlendan tækniiðnað og innlenda þekkingu á hýsingu.
Fréttin í heild er á vísir.is.