Varnaruppbygging í formi stafræns fullveldis

· Atlas

Viðskiptablaðið fjallaði um internetsamstarf Atlas og Nova og stöðu Íslands í stafrænu fullveldi undir fyrirsögninni „Varnaruppbygging í formi stafræns fullveldis“.

Fyrirsögn greinar Viðskiptablaðsins: „Varnaruppbygging í formi stafræns fullveldis“. Framkvæmdastjóri íslenska skýjafyrirtækisins Atlas segir að 80% íslenskra stofnana hýsi mikilvæga þjónustu erlendis.

Stafrænt fullveldi snýst um að þjóð hafi fulla stjórn á innviðum, gögnum og stafrænum þjónustum, og að hún eigi lokaorðið um eigin stafræn örlög. Þar stendur Ísland ekki vel: meirihluti innviða í landinu hvílir á sömu fjórum stóru aðilunum og 80% íslenskra stofnana hýsa mikilvæga þjónustu erlendis.

Í greininni er líka rætt hvernig verja mætti því framlagi sem rennur til varnarmála. Í stað þess að vopnvæðast má styrkja stafræna innviði landsins og gera okkur fullvalda yfir okkar eigin gögnum. Það er sú varnaruppbygging sem Atlas vinnur að.

Greinin í heild er á vb.is.