Vill tryggja sjálfstæði Íslands
· Atlas
Þóroddur Bjarnason fjallaði um Atlas í Morgunblaðinu og á mbl.is undir fyrirsögninni „Vill tryggja sjálfstæði Íslands“.
Íslensk fyrirtæki og stofnanir hafa í síauknum mæli fært gögn sín og þjónustu yfir í skýjalausnir alþjóðlegra tæknirisa. Sá böggull fylgir skammrifi að ef sæstrengir rofna þá liggja mikilvægustu upplýsingarnar í gagnaverum erlendis og eru ekki aðgengilegar.
Atlas var stofnað fyrir um einu ári og tók við fyrstu viðskiptavinunum í desember. Markmiðið var og er að búa til örugga og aðgengilega skýjaþjónustu, alfarið hýsta á Íslandi.
Greinin í heild er á mbl.is og birtist í Morgunblaðinu.