Katla ráðin viðskiptaþróunarstjóri hjá Atlas Cloud

· Atlas

Viðskiptablaðið sagði frá nýjum liðsmanni Atlas undir fyrirsögninni „Katla ráðin viðskiptaþróunarstjóri hjá Atlas Cloud“.

Katla Ásgeirsdóttir, viðskiptaþróunarstjóri og sérfræðingur í stafrænu fullveldi hjá Atlas.

Katla Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin viðskiptaþróunarstjóri og sérfræðingur í stafrænu fullveldi hjá Atlas. Þetta er nýtt starf hjá félaginu. Katla starfaði áður hjá máltæknifyrirtækinu Miðeind, þar sem hún sá um viðskiptatengsl við OpenAI og leiddi kynningarmál í samstarfinu um að koma íslensku inn í mállíkön OpenAI.

Hlutverk hennar hjá Atlas verður að byggja upp viðskiptatengsl við innlenda viðskiptavini og leiða umræðu félagsins um stafrænt fullveldi. Eftirspurn eftir innlendri hýsingu hefur aukist hratt undanfarna mánuði, samhliða breyttri umræðu um hvar íslensk gögn eru geymd.

Við bjóðum Kötlu velkomna í hópinn.

Greinin í heild er á vb.is.